Mánudaginn 07.06.2021 fer fram aðalfundur Samhjálpar klukkan 17:00 í húsnæði Fíladelfíu Hátúni 2, Reykjavík.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Á hverjum degi gefum við allt að 200 máltíðir til þeirra sem á þurfa að halda. Yfir hátíðina er mikil ásókn í þjónustuna og við tökum á móti öllum með bros á vör.Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum með því að gefa andvirði máltíðar. Markmiðið er að safna 200 máltíðum á dag þannig að við hvetjum þig til að skora á vini og vandamenn að gefa máltíð líka. Smellið á hlekkinn hér að neðan. Kærar þakkir fyrir stuðninginn!
Vegna nýrra fyrirmæla Landlæknis og sóttvarnayfirvalda um fjöldatakmarkanir, verðum við því miður að fella niður Samhjálparsamkomur um óákveðinn tíma. Því verður ekki samkoma í kvöld, 30. júlí. Staðan verður metin aftur eftir tvær vikur.
Skrifstofa Samhjálpar er lokuð til 4. ágúst nk. kl. 10:00.
Símanúmer Kaffistofunnar er 854 8307.
Vegna meðferðar í Hlaðgerðakoti á að hringja í síma 566 6148.
JDE Retail er kaffibirgi í Hollandi og náinn samstarfsaðili Ölgerðarinnar. Í ljósi aðstæðna vegna Covid 19 vildi fyrirtækið leggja sitt af mörkum til að styðja við íslenskt þjóðfélag og gefa Gevalia Instant kaffi til þeirra sem á þurfa að halda. Ölgerðin hefur á síðustu dögum dreift gjöfinni til íslenskra hjálparsamtaka, dvalarheimila, löggæslunnar, almannavarna og björgunarsveita. Samhjálp sótti kaffi til Ölgerðarinnar á dögunum og hefur það svo sannarlega komið að góðum notum. Við erum stolt og þakklát fyrir þann samstöðumátt sem skín í gegn á þessum tímum um allan heim, en þess má geta að Eimskip lagði sitt af mörkum með hagstæðum flutningi.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur nú að átakinu „Hjólað í vinnuna“. Allir geta tekið þátt svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til og frá vinnu þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta o.s.frv.
Aðalfundur Samhjálpar verður haldinn fimmtudaginn 28. maí n.k. kl. 17:00 í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, Hátúni 2.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Þann 4. maí n.k. munum við byrja að taka inn skjólstæðinga sem eru á biðlista til að komast að í meðferð í Hlaðgerðarkoti. Þetta hefur verið erfiður tími fyrir þessa aðila og það gleður okkur mjög mikið að geta fjölgað aftur í húsi hjá okkur. Við munum þó að sjálfsögðu halda áfram að fara eftir leiðbeiningum almannavarna vegna Covid-19.
Okkur barst óvæntur liðstyrkur og getum því haft Kaffistofu Samhjálpar opna yfir helgina. Það er mjög ánægjulegt að finna fyrir velvilja samborgara okkar á þessum tímum og viljum við hjá Samhjálp þakka kærlega fyrir hjálpina til að geta haldið áfram hlutverki okkar. Við bjóðum alla velkomna til okkar á venjulegum opnunartíma. Einnig ítrekum við að fyrir þá sem vilja er velkomið að koma með ílát til að taka mat með sér.
Vinningaskráin úr happdrættinu verður birt mánudaginn 13. janúar.
Samhjálp óskar öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með kærum þökkum fyrir stuðninginn á nýliðnu ári.
Rótarýklúbburinn Straumur Hafnarfjörður styrkti Samhjálp veglega á dögunum.
Hlaðgerðarkot mun njóta góðs af þessum styrk, því ákveðið hefur verið að kaupa ný rúm í herbergin í álmunni sem nýbúið er að gera upp.
Fyrirtækið LS Retail ehf. hafði samband við skrifstofu Samhjálpar á dögunum og vildi fá að styrkja bæði Kaffistofuna fyrir jólin og að auki ætlar fyrirtækið að halda áfram að styrkja samtökin mánaðarlega yfir allt næsta ár!
Veritas Capital styður við bakið á einu málefni á ári hverju og þessu sinni varð Samhjálp fyrir valinu. Samhjálp mun nýta þennan veglega styrk sem Veritas veitti til að halda jólin sem hátíðlegust fyrir skjólstæðinga Kaffistofunnar sem munu heimsækja hana yfir hátíðarnar.
Skrifstofa Samhjálpar verður lokuð frá kl. 12 í dag, 10. des. vegna veðurs.
Eins mun Kaffistofan loka í hádeginu en við viljum vekja athygli á því að gisti- og neyðarskýli verða opnuð fyrr í dag og taka við þeim einstaklingum sem ekki eiga í nein hús að venda. Við hvetjum fólk eindregið til að nýta sér þessi úrræði í dag og jafnvel á morgun.
Eldri fréttir
-
Oddfellow gefur Kaffistofunni
-
Jólatónleikar Samhjálpar í Fíladelfíu
-
Nýr framkvæmdastjóri Samhjálpar
-
Vegna Kótilettukvöldsins
-
Dagskrá Kótilettukvöldsins 2019
-
Kótilettukvöld Samhjálpar 2019
-
Fréttir af Reykjavíkurmaraþoninu
-
Reykjavíkurmaraþon 2019
-
Sumarblað Samhjálpar 2019 er komið út
-
Bílaplanið malbikað í Hlaðgerðarkoti
-
Framkvæmdir á bílaplaninu í Hlaðgerðarkoti
-
Aðalfundur Samhjálpar 2019
-
Skrifstofan er lokuð miðvikudaginn 10. apríl
-
Oddfellowhúsið í Reykjavík gefur sófa og stóla í setustofu í Hlaðgerðarkoti
-
Samhjálp fagnar 46 ára afmæli í dag
-
Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowreglunnar styrkir Hlaðgerðarkot